Getur útlit og framsetning vöru /þjónustu skipt máli - Hlutverk hönnunar í rekstri fyrirtækis!!
Það eru margir á Íslandi sem fara í gang með fyrirtæki, vegna þess að sú vara eða þjónusta sem viðkomandi bauð uppá sem tómstundargaman í upphafi varð eftirsótt af viðskiptavinum. Það er í slíkum tilvikum eðlilegt að þá sé það eina sem komist að í hugum stofnenda að sjá til þess að grundvallaratriðin séu í lagi. Þessi grundvallaratriði eru oftast nær þá nafnið á fyrirtækinu, bókhaldið, lagalegur þáttur og svo rekstrarleg niðurstaða. Það sem oft gleymist er allt hitt. Eitt af þessu hinu er þáttur grafískrar hönnunar, uppsetningar, framsetningar og iðnhönnunar hjá tiltekinni vöru eða þjónustu. Þessi þáttur er ef vel er að gáð bæði stór og víðferm ef vel á að vera. Grafísk hönnun snýst t.d um að velja rétt nafn og búa til rétt vörumerki (LÓGÓ) á fyrirtækið og svo vöruna (það er ekki alltaf það sama og nafnið á fyrirtækinu). Að velja rétta litinn skiptir gríðarlega miklu máli, þar sem litur getur túlkað ódýrt og dýrt, heimilslegt eða fyrirtækjalegt, bankalegt eða bændalegt og holt og óholt og allt þar á milli. Val á stafatýpu hefur einnig mikið að segja og svo val á því hvernig vara og þjónusta er framsett á öllu grafísku efni, á netinu, á blaði, umslagi, utan á bíl, í bækling eða nafnspjaldi. Það eru margir sem halda að þetta sé eitthvað sem hver sem er getur gert og þetta skipti í raun afar litlu máli í heildarsamhengi hlutana. Það er ekki svo. Í raun getur þetta snúist um munin á því að fá 100% hærra verð fyrir vöruna eða ekki, að fá 100% fleiri viðskiptavini eða ekki eða að hafa 100% trúverðugleika.....eða ekki. Það eru fleiri hlutir sem skipta máli, en hér hef hafa nokkrir hlutir verið nefndir til að sýna fram á mikilvægið. Það er ástæða fyrir því af hverju boðið er upp á nám í þessum fögum og hví sumir eru vinnsælli en aðrir í þessu fagi. Hafið samband ef þið eruð í vafa um málið. V6 hefur svör á reiðum höndum.












