36. Að sækja um patent /einkaleyfi - hvað er það?
Margur hefur fengið eina eða tvær hugmyndir um daganna og sumir jafnvel fleiri. Hugmynd er til alls fyrst, en oft eru hugmyndir góðar í smá stund og svo kemst maður að því að það er til eitthvað svipað í veröldinni, eða að hugmyndin hefur í sér ákveðna vankanta sem gerir það að verkum að ekki fylgi því nægur gróði að það taki að fylgja henni eftir og gera hugmyndina að veruleika.
Oft er það svo að í góðum hópi fólks, við líflegar umræður um ákveðið málefni, að hugmyndir skapast, enda hefur verið sýnt fram á að bestu hugmyndirnar skapist í tengslum við þarfir fólks eða jafnvel fáránlegar vangaveltur, jafnvel gríni að ákveðnu atriði í okkar samfélagi. Það sem skilur oft góðar hugmyndir frá þeim slæmu er að þær eru oft svo einfaldar að hver sem er gæti hafa fengið þær..........en oft er það einmitt vegna þess sem hugmyndin er ekki orðin að veruleika. Oft fá jafnvel tveir sömu hugmynd á tveimur stöðum í veröldinni og útfæra hana á mismunandi hátt þar sem ein nær meiri árangri en hin og getur orsök þess legið víða. Hugmynd er oft svo einföld að jafnvel þeir sem fá hana fyrst hlæja yfir fáránleika þess hversu einföld hún er og augljós en svo gera þeir jafnvel ekkert meira í þessu. Það þarf ákveðna hugsun og hæfileika til að sjá tilganginn með því að setja meira ferli í gang til að sjá hvort verið gæti að hugmyndin ætti sér fót í raunveruleikanum sem segði til um fýsileika þess að setja hana í framkvæmd.
Að sækja um einkaleyfi er eitt af því sem þarf að gera til að vernda góða hugmynd sem auðvelt getur verið að stela af öðrum sem hefur til þess hæfileika, tækni, fjármagn og tengsl. Þetta getur verið langt og strangt og flókið ferli en ef þekkingu er beitt á réttan hátt er hægt að koma í veg fyrir að tíma annarra og fjármagni sé eytt til einskis. Það er líka svo að til eru einstaklingar, eins og ég til að mynda, sem hafa til þess reynslu og þekkingu til að meta hvort hugmynd sé komin á það stig að hægt sé að sækja um einkaleyfi á hugmyndinni, hvort hugmyndin sé fullþróuð og hvort verið gæti að tækifæri leynist í því að sækja um einkaleyfi. Stundum eru ákveðin svið orðin svo hlaðin einkaleyfum, að til að ná í gegn þarf hugmyndin að vera rótæk og nýrri en þau einkaleyfi sem fyrirfinnast á markaðnum. Þetta þarf allt að meta. Einkaleyfi er ein besta leiðin til að passa það að hugmynd haldist í höndum þess sem fær hugmyndina. Einkaleyfi er líka talsvert dýr leið og því er ekki gott að fara í gang með einkaleyfisumsókn nema viðkomandi hafi nægjanlega mikla trú á framgangi vörunnar á markaði og telji sig geta fylgt því eftir að koma hugmyndinni í framkvæmd með einum eða öðrum hætti og þar með fá inn fjármagn til að geta verndað hugmyndina áfram. Stundum er það svo að gáfulegra getur reynst að setja verkefnið í gang og ná með því þeim árangri sem ætlast er til á skömmum tíma og sleppa því að sækja um einkaleyfi. Það er hægt að gera í ákveðnum tilvikum en þetta er allt hlutur sem þarf að meta. Í því tilviki þá þarf að liggja fyrir sú meðvitaða ákvörðun að gefa skít í þá sem vilja búa til eftirmyndir af hugmyndinni því að upprunalega útgáfan er þeim gæðum gædd að erfitt geti verið að eftirapa með árangursríkum hætti. Oft er góð hugmynd byggð á sérþekkingu viðkomandi hugvitsmanns. Oft er það sá hluti sem geymir best viðkomandi einkaleyfi, að ekki allt sem sést, sé partur af hugmyndinni , heldur það sem viðkomandi gerir til að koma verkefninu áfram svo árangur náist. Þekking er því viðamikill þáttur í að gera nýjar hugmyndir að veruleika. Vanda skal því valið og velja til þess þá þekkingu sem býðst. Hafðu samband við V6 Sprotahús ef þú ert með hugmynd, og við skulum sjá hvað við getum gert í málunum.












