27. Stofnun fyrirtækis
Alltaf er það svo að einhver hefur áhuga á að stofna fyrirtæki. Að stofna fyrirtæki er eitthvað sem allir ættu í raun að prófa. Ástæðan liggur í því að stofnun fyrirtækis krefst þess að maður gerir sér grein fyrir hvernig hlutirnir hanga saman í þjóðfélaginu og hvað þurfi að vera í lagi og til staðar til að eitt stykki fyriræki geti gengið og rekið sig. Áhugaverðir punktar og mikilvægir í tengslum við stofnun fyrirtækis er eitthvað sem mig langar til að nefna hér. Upptalning þeirra er á engan hátt tæmandi né að ég komi til með að útskýra það nákvæmlega, heldur er hér einungis ætlunin að gera lesanda grein fyrir nokkrum af þeim þáttum sem vert er að hafa í huga áður en haldið er af stað.
Bókhald og endurskoðun. Að hafa góða stjórn á bókhaldinu þýðir í raun að taka þarf kvittanir fyrir öllu sem gert er og þarf þar að koma fram kennitala fyrirtækis eða kaupanda, dagsetning og upplýsingar sem tengjast verslun, upphæð, vöru og þessháttar. Að safna öllum kvittunum fyrir í góðri möppu í góðu skipulagi er einnig mikilvægt því svo þarftu að hafa bókara /endurskoðanda sem þarf að fara yfir hverja kvittun og hvern þann þátt sem tengist rekstri og þeim mun meira sem þú getur verið búin að skipuleggja þig og bókhaldið, þeim mun minni vinna þarf bókarinn haf sinna fyrir þig og kostar hann þig þarafleiðandi minna.
Stofnun fyrirtækis kostar pening. Skráning fyrirtækis og það að fá kennitölu kostar pening (sem fer beint í ríkiskassann) og er hægt að fá upplýsingar um það inn á www.rsk.is.
Samningsgerð. Að hefja rekstur snýst um að selja vöru eða þjónustu. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að þú þarft að hafa og geta sýnt fram á reikning, samning og kvittun, eða gefa kvittanir allt eftir því hvað um er að ræða. Gerð góðs samnings getur verið vandaverk og er vissara að leita ráðgjafar varðandi það áður en haldið er af stað. Vissara er að hafa samband við lögfræðing og gæti hann kostað sitt einnig.
Að láta gera lógó. Að gera kynningarefni fyrir fyrirtækið er ekki eitthvað sem allir geta gert sjálfir. Ég mæli með því að haft sé samband við góðan grafískan hönnuð sem getur hjálpað til við að búa til heiti og útlit á öll kynningargögn þannig að fyrirtækið líti vel út og hafi yfir sér trúverðugleika og traust.
Tækjabúnaður. Öll fyrirtæki þurfa tækjabúnað til að geta starfað. Það þarf væntanlega síma, bíl, prentara og tölvu og kannski myndavél eða búðarkassa. Vissara er að vera búin að gera sér grein fyrir því hvað um er að ræða í tækjabúnaði. Öll kaup af þessu tagi er hægt að draga frá skatti í rekstri fyrirtækisins og mikilvægt er að halda eftir kvittunum í öllum tilvikum.
Að gera viðskiptaáætlun.Gerð viðskiptaáætlunar er ekki endilega eitthvað sem sérfræðingar geta bara gert. Þú getur í raun gert annsi margt sjálf /ur , og er það í raun eitthvað sem ég mæli með að þú gerir. Ástæðan er einfaldlega sú að þú ert frumkvöðullinn og þekkir þarafleiðandi þarfir og kröfur þíns eigins fyrirtækis best. Þessvegna kemur best út að þú gerir mestu vinnuna, því þú kemur til með að njóta mest góðs af því að hafa gert áætlunina og áætlunin verður í meiri samræmi við það sem þú stefnir á með fyrirtækið. Svo er alltaf hægt að leita aðstoðar í tengslum við rekstraráætlunina eða viðskiptalega þætti sem nauðsynlegt er að geta sýnt fram á þegar þú þarft að kynna áætlunina eða sýna væntanlegum fjárfestum eða þátttakendum. Þú þarft kannski að láta gera fyrir þig eða gerir sjálf/ur skoðanakönnun og /eða þú þarft á viðskiptafræðing að halda til að geta sett hluti í samhengi. Viðskiptaáætlun er allavega engin geimvísndi svo mikið er víst.
Hér hef ég stiklað á stóru og farið hratt yfir. Það sýnir bara hversu margt þarf að vera í lagi, en ef allt er hugsað áður en farið er af stað, mun allt ganga mun betur og áhættuþáttur verður mun minni. Leitaðu ráðgjafar hjá okkur í V6 Sprotahúsi um gerð viðskiptaáætlunar eða annara þátta er snúa að því að gera hugmyndina að veruleika og stofna fyrirtækið. Við eigum ráð undir rifi hverju :)








