Pottagjörningur á Silfurtorgi
Í kjölfar Bríetar er samstarfsvettvangur kvenna á Ísafirði og nágrenni með það markmið að halda upp á hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna. Hópurinn hefur hist í raunheimum nokkrum sinnum en hefur mest samband í gegnum "Í kjölfar Bríetar" hópinn á Facebook. Í dag, laugardaginn 30. maí, framdi hópurinn gjörning, eða innsetningu, á Silfurtorgi. Konur settu skilaboð, hugleiðingar eða eitthvað persónulegt frá sér í pott, og pottunum var svo raðað upp.
Já, hvað skyldi krauma í pottum kvenna?
Ljósmyndir hér að ofan eru frá Matthildi Helgadóttur Jónudóttur - notaðar með góðfúslegu leyfi hennar.
Voffi hundur, Gerður fjármálastjóri, Þórdís Sif bæjarritar, Steingrímur Rúnar verslunarstjóri, Matthildur rekstrarstjóri og Gísli Halldór bæjarstjóri velta vöngum.
Mitt framlag var mynd af fiskverkakonum. Myndin er stolin "af netinu" og tengist mér ekki á nokkurn hátt en ég hef mikinn áhuga á efninu og draumur minn er að lyfta fiskverkakonum (og landvinnslufólki almennt) aðeins upp svo þær geti fengið að sóla sig í þeim hetjuljóma sem sjómenn njóta.












