Nýtt Vinnuver á Ísafirði
Ég ætlaði að taka alveg fullt af myndum við opnun Vinnuvers í gær 1. maí. En þegar ég kom heim sá ég að ég hafði bara smellt af nokkrum sinnum, því ég hreinlega gleymdi mér við að njóta þessa skemmtilega og stílhreina húsnæðis og hugsa um allt góða starfið sem þarna kemur saman á einn stað. Þarna verður markaður Vesturafls til húsa, og það má sjá að umsjónafólk markaðarins kann vel að meta að hafa loksins fína búðarglugga til að sýna varninginn.
Auk markaðsins, þá verður þarna önnur starfsemi Vesturafls, Starfsendurhæfing Vestfjarða, dósamóttaka og svo mun verða rekin fjölsmiðja fyrir unglinga og fullorðna. Virkilega spennandi allt saman og gaman að sjá hversu vel hefur tekist að gera húsnæðið aðlaðandi með útsjónarsemi og smekkvísi.














