UTmessan er engin venjuleg messa! Hún er einn stærsti viðburður ársins þar sem öll helstu tölvu- og tæknifyrirtækin koma saman. Þarna verður allt það heitasta og ferskasta í tölvubransanum og frábært tækifæri fyrir alla að sjá hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin.
Messan fer fram 6. og 7.febrúar næstkomandi og lætur Hugsmiðjan sitt ekki eftir liggja. Við verðum við með bás á gullsvæðinu á 1.hæð. En ekki hvað. Það verður nóg um að vera, fullt af áhugaverðu fólki og áhugaverðum básum.
Þetta er í fimmta sinn sem UTmessan er haldin og hefur tilgangur hennar snúist um að sýna almenningi um hvað tölvuiðnaðurinn snýst, vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar í daglegu lífi og einnig að sjá fjölgun nemenda innan tölvunarfræða innan háskólanna á Íslandi.
Við vonumst til að sjá sem flesta kíkja við í einn rjúkandi góðan kaffibolla og spjall!
Anya is live and ready to show you everything. Watch her strip, dance, and perform exclusive shows just for you. Interact in real-time and make your fantasies come true.
✓ Live Streaming✓ Interactive Chat✓ Private Shows✓ HD Quality
Anya is LIVE right now
FREE
Free to watch • No registration required • HD streaming
Síðasta helgi var viðburðarrík. Föstudag og laugardag vorum við með bás á UT messunni. Þar var hellingur um að vera, fullt af áhugaverðum básum og margir viðburðir báða dagana. Básinn okkar iðaði af lífi; fína kaffið okkar var vinsælt, snjallpennarnir og nammið. Ja, og vonandi við líka!
Í föstudagseftirmiðdegið voru svo Íslensku vefverðlaunin afhent.
Nýr flokkur: Aðgengilegasti vefurinn
Hugsmiðjan er mjög sátt við nýjan aðgengisflokk sem bætt var við í ár. Við höfum í gegnum árin sett mikið púður í að gera alla okkar vefi aðgengilega og að koma þeim hugsunarhætti inn í allt okkar verkferli.
Það er ekki endilega augljóst hvort vefur er aðgengilegur eða ekki, en þeir sem þurfa mest á því að halda eru þeir sem finna fyrir því þegar þeim hefur verið gleymt við smíði vefs. Litlir hlutir eins og að passa alltaf að setja inn “alt” texta fyrir myndir. Skrifa HTMLið eftir stöðlum, setja veftréð neðst í kóðann en birta hann efst með stilsniðinu. Margir litlir hlutir sem auðvelt er að láta sér yfirsjást, en hafa mikil áhrif á t.d. notendur sem reiða sig á skjálesara.
Þessvegna finnst okkur mjög jákvætt að skipuð var sérstök dómnefnd sérfræðinga í aðgengismálum í ár. Hún skoðaði tilnefnda vefi með þess til gerðum tækjum og með sérfræðiáliti sínu mat aðgengileika út frá sömu fítusum og fatlaðir notendur gera.
Sigurvegarinn var vefur Skattrannsóknarstjóra, Skattrann.is, sem var unninn af Hugsmiðjunni.
Dómnefndin hafði eftirfarandi að segja:
Skattrann vefurinn er auðveldur í notkun, skipuleggur mikið magn efnis á þægilegan og árangursríkan hátt, notar tækninýjungar til að auðvelda notendum að finna það sem þeir leita að á vefsvæðinu, uppfyllir öll grunnskilyrði um litamótstöðu, lyklaborðsaðgengi, skýrleika og einfalda uppsetningu á texta, notkun fyrirsagna, kennileita, notar titil á síðu, skilgreinir tungumál síðunnar, merkir myndir þannig að þær eru skýrar fyrir skjálesara og merkir alla tengla og aðgerðarhnappa á skýran og skilmerkilegan hátt.
Athyglisverðasti vefurinn
Nýr vefur okkar, hugsmidjan.is, vann í flokknum Athyglisverðasti vefurinn. Skráðir félagsmenn SVEF kjósa um sigurvegarann í þessum flokki. Við þökkum félögum okkar í vefiðnaðinum kærlega fyrir hrósið.