Ég er einfaldur maður, með einfaldan smekk, ég vel aðeins það besta…samt stundum ekki.
Ég fór í Hyalin sem er ný frönsk sælkeraverslun á Hverfisgötu. Ég hugsa ég láti bara leggja launin mín beint þar inn næstu mánaðarmót, þetta er dásamleg búð með alls konar kruðeríi, súkkulaði, anda confit, kertum, fallegri franskri hönnun o.s.fr.v. Þar keypti ég líka þennan fína mangó edik sem harmónerar rosa vel með salatinu.
Í Marokkó er mikið unnið með appelsínur í salati, þá eru þær skornar í sneiðar og svo er allt þetta hvíta skorið í burtu svo bara dísætt kjötið er eftir.
Ég bakaði möndlur í ólívuolíu og anís og Sweet Onion & Appelwood kryddblöndu sem ég keypti í Williams Sonoma í NY, en það má nota bara það sem maður vill og er hendi næst. Möndlurnar eru svo brytjaðar gróft.
Klettasalat er grunnurinn, svo koma appelsínubitarnir, olía, smá parmesan, möndlur, meira parmesan, salt og pipar og mangó edik.
Einfalt og öðruvísi sumarsalat.
Sumarsalat með appelsínum, ristuðum möndlum, parmesan og mangóedik Ég er einfaldur maður, með einfaldan smekk, ég vel aðeins það besta...samt stundum ekki. Ég fór í …