Ég elska að gera fint í kringum mig. Breyta og bæta það sem er nú þegar. Nú eru þrjú og hálft ár síðan ég flutti í íbúðina mína og hún er enn ekki alveg tilbúin. Aðallega því ég finn alltaf eitthvað nýtt til að gera. Um áramótin flutti svo strákur inn til mín. Hann er haldinn sama sjúkdómi og ég svo við verðum að vinna í þessari íbúð þangað til við flytjum eitthvert annað.
Síðan Bergdís fæddist hef ég haft augun opin fyrir fatahengi eða snögum til að hengja útifötin hennar á. Í skærum litum, með dýrum, hvernig sem er, en ég fann ekki neitt sem mér fannst nógu fallegt. Um helgina áttum við svo leið í IKEA, þar rákumst við á þetta fína fatahengi sem við ákváðum að kaupa og mála.
Mynd er stolin af ikea.is því ég tók enga fyrir mynd. Snaginn heitir Leksvik ef þið hafið áhuga.
Eftir miklar vangaveltur um lit ákváðum við að mála það blátt. Bleikur kom sterkur til greina líka en mér finnst þessi litur yfirburða fallegur.
Komið upp og tilbúið til notkunar.
Barnið á fleiri útiföt en ég.
Er mjög, mjög sátt við þetta.
Það er að koma mynd á þetta allt saman en við erum að dunda okkur í því núna að gera hennar hlið í svefnherberginu fína.








