Litla skriðdýrið mitt
Bergdís er byrjuð að skríða, eða draga sig áfram. En hún er sko orðin snögg og allt sem er í gólfhæð og er ekki dót er í stórhættu að vera nagað. Í stofunni erum við með hvíta Kallax hillu úr Ikea. Í neðstu hillunum eru DVD myndir og karfa með föndurdóti og sprittkertum. Þessar hillur toga mjög sterkt í mína og hafa þónokkrar myndirnar fengið handfjötlun frá litlum puttum. Snögg ákvörðun var því tekin um að skreppa í IKEA og splæsa í tvo kassa til að setja í sitthvora hilluna. Þremur vikum seinna (bíllinn er búinn að vera bilaður) lá leiðin loksins í Garðabæinn.
Útkoman varð svona:
Núna getur hún gengið í (skriðið) hillurnar eins og hún vill og nagað eins og hún vill. Kassarnir eru líka alveg nógu léttir svo hún á auðvelt með að draga þá sjálf út og sækja dótið sitt sem er geymt í þessum kössum. Geymsluplássið í 45fm íbúðinni okkar er heldur ekki það besta svo þetta er mjög góð lausn til að geyma hennar dót.
Svo snyrtilegt. Og hún sátt.












