Trúarleg rök sem leitað er að.
Í þessum yfirlýsingum fyrir neðan reyni ég að leita að því hverskonar trúarlegrök og siðferðisrök eru sett fram. Ég hef mesta þekkingu á abrahamísku trúarhefðunum og þekki betur trúarleg rök sem notuð eru innan þeirra en í austurlenskum hefðum. Þau trúarlegu rök sem ég skima helst eftir eru: Ráðsmennskurök, að manneskjan eigi að gæta sköpunarverksins, sé einskonar ráðsmaður í sköpunarverkinu sem eigi að hlúa að og gæta að sköpuninni sem hann sjálfur er hluti af. Ecojustice, að það sé hreint og beint réttlætismál að huga vel að sköpunarverkinu og að það tengist inná siðferðisskyldur okkar gagnvart náunganum, Guði, og sköpunarverkinu í heild sinni. Ecospirituality, að það sé einhver spiritual vídd í tengslum manns og náttúru, að maðurinn sé hluti af stærri heild og að maðurinn þurfi að uppgötva tengsl sín við náttúruna sem hafa glatast. Guð í náttúrunni, (shekiah, panentheism), hvort litið sé svo á að Guð sé á einhverja vegu hluti af sköpunarverkinu, hvort að Guð búi í sköpuninni sjálfri og með því að drepa sköpunina sé á vissan hátt verið að drepa Guð. Trúarleg lögmál, hvort að trúartextar tali hreint og beint gegn eyðingu náttúrunnar og hvernig trúarhópar túlka slíkt lögmál. Fleiri rökum er beitt en vonandi opnar þetta örlítið augu þeirra sem ekki hafa lesið guðfræði eða trúarbragðafræði fyrir því hvað það er sem ég er að reyna að gera hér.













