Af hverju varð ,,Höldum fókus" vinsælt en ekki hitt?
Framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan framleiddi síðasta sumar gagnvirka auglýsingu fyrir Samgöngustofu í samstarfi við Símann. Verkefnið hét ,,Höldum fókus". Ef þú ert ekki búinn að upplifa þetta þá mæli ég eindregið með því.
Verkefnið hlaut gríðarlega góð viðbrögð og yfir 25 þúsund manns deildu myndbandinu áfram og fékk verkefnið góða umfjöllun í fjölmiðlum.
Tjarnargatan framleiddi svo myndband sem var frumsýnt í sumar í kringum verkefnið ,,Ekki tapa þér" og það fyrir KSÍ. Í því myndbandi er hægt að fylgjast með fótboltaleik ungra stráka og upplifa leikinn frá mismunandi sjónarhornum og fylgjast með því hvernig sumir foreldrar gjörsamlega tapa sér á leikjum barna sinna.
Myndbandið hefur fengið í kringum 15 þúsund spilanir en ekki nálægt því eins mikla spilun og umfjöllun eins og ,,Höldum fókus" verkefnið.
Svarið liggur í nokkrum atriðum sem verða að vera til staðar svo efni verði vinsælt, ,,viral", á veraldarvefnum og það atriði sem skiptir mestu máli er að móttakandinn verði fyrir örvun (e. physiological arousal).
Það sem vekur upp örvun er:
Þegar við verðum t.d. mjög reið eða spennt yfir efni á netinu þá örvumst við og þegar við örvumst þá erum við líklegri til þess að grípa til einhverra aðgerða. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þegar við erum í þessu örvunar ástandi þá eru meiri líkur á því að við deilum efni á netinu áfram, þ.e.a.s. við grípum til aðgerða.
Sama er að segja um sögur. Við deilum frekar sögum áfram sem hafa byrjun, miðju og endi og sögur sem hafa góðan boðskap lifa lengur.
Ég vildi minnast á þessa hluti því mín skoðun er sú að seinna verkefni Tjarnargötunnar hafi vantað tvo lykilþætti til þess að verða ,,viral"; tilfinningu og góða sögu.
Ef við berum saman þessi tvö verkefni og skoðum þau nánar þá má sjá muninn.
Vekur upp sterkar tilfinningar (ótta, spennu og reiði). Einnig aðdáun yfir hversu flott þessi gagnvirka upplifun er.
Góð saga. Við erum sett inn í söguna og tengjumst því betur við persónu sögunnar og setjum okkur frekar í hennar spor. Sagan hefur góða byrjun, miðju og endi. Það er því auðvelt fyrir hvern sem er að segja frá myndbandinu og deila sögu þess áfram í samræðum við aðra.
Nær til stærri markhóps. Það nota flestir síma og keyra bíla. Þetta er þó bara smáatriði en skiptir auðvitað máli.
Vekur ekki upp sterkar tilfinningar. Að mínu mati vantar að myndbandið vekji upp reiði og eða spennu. Það örvast enginn og því minni líkur á því að því sé deilt áfram
Enginn endir. Sagan sem sögð er byrjar ágætlega og hægt að fylgjast með frá mörgum sjónarhornum. Gallinn er sá að miðjann (risið í sögunni þegar pabbinn gengur inn á völlinn) fær alla athygli og í raun er enginn endir. Áhorfandinn er skilinn eftir í lausu lofti og fær ekki almennilega niðurstöðu. Sem veldur því að litlar líkur eru á því að einhver segi frá sögunni þar sem hana vantar betri uppbyggingu og betri endi.
Markhópurinn minni. Smáatriði en skiptir máli.
Að mínu mati er niðurstaðan sú að ,,Höldum fókus" varð vinsælt vegna þess að það náði að búa til góða sögu sem áhorfandinn gat tekið þátt í og hafði byrjun, miðju og endi sem vakti svo upp sterk viðbrögð og örvun. ,,Ekki tapa þér" vantar að örva áhorfandann og meðal annars held ég að slöpp saga hafi þar spilað inn í.