Haustlægðirnar sigla yfir landið ein af annarri. Það er ekkert betra á stormasömum sunnudegi en að baka, hugleiða, hlusta á ljúfan eldhúsjazz og smátt og smátt fyllist húsið af kanil- og vanilluilm og um leið og síðasta platan kemur úr ofninum hellir maður uppá. Oooohh.
Hér er ljómandi playlisti fyrir eldhúsbrasið:
Ég hreinleg elska kanilsnúða. Hér kemur mjög einföld uppskrift sem ég tvíkaði aðeins til með því að gluða pistasíukremi inn í þá í viðbót við smjör/kanil/púðursykurs kombóið. Ég keypti ansi margar krukkur af þessu kremi á Ítalíu síðasta sumar en ég veit að Jói Fel selur svipað frá Nicolas Vahé sem er ofsalega gott.
Þú þarft:
500gr hveiti
100 gr sykur
1 pakki þurrger
2 tsk salt
2 tsk vanilludropar
1 dós KEA skyr með kaffi og vanillu
2 egg
80 gr mjúkt smjör
Fylling:
100 gr bráðið smjör
3 msk púðursykur
1 msk kanill
1 dós pistasíukrem
Maður blandar saman þurrefnunum og svo fer restin útí eitt af öðru, allt í rólegheitunum. Deigið er látið hefast í 30 mínútur og svo er hnoðað duglega aftur og flatt út.
Ég nota þetta KEA skyr sem er í uppáhaldi hjá mér núna, slær jafnvel út grísku kaffijógúrtina frá Örnu.
Smjör, púðursykur og kanill er hrært vel saman þar til það er mjúkt, þá er það penslað á deigið, svo er pistasíukreminu dreift yfir. Deiginu er svo rúllað í pulsu og snúðarnir skornir í ásættanlega stærð.
Ég myl svo valhnetukjarna yfir snúðana bara svona af því bara en það má náttúrulega sleppa því.
Snúðarnir eru bakaðir í 25 mínútur við 200°C…geggjaðir!
Sunnudagssnúðar með pistasíukremi Haustlægðirnar sigla yfir landið ein af annarri. Það er ekkert betra á stormasömum sunnudegi en að baka, hugleiða, hlusta á ljúfan eldhúsjazz og smátt og smátt fyllist húsið af kanil- og vanilluilm og um leið og síðasta platan kemur úr ofninum hellir maður uppá.











