Eitt tákn um að hjólreiðar séu álitnar mikilvægur samgöngumáti eru merkingar á götuskiltum.
Það þarf ekki alltaf að leggja hjólastíga eða hjólareinar til þess að fólk komist leiðar sinnar á reiðhjólum. Stundum er fínt að sameina hjóla- og akbrautir, sérstaklega þar sem umferð er hæg og inni í íbúðarhverfum. Þá er mikilvægt að taka tillit til þess að hjól eru fyrirferðarminni en bílar og að hjólaumferð lýtur öðrum lögmálum en bílaumferð. Skiltin á meðfylgjandi myndunum (teknar í Haag) gefa öll til kynna að ákveðnar merkingar eigi bara við um bíla og gildi ekki fyrir reið- eða mótorhjól.
Þau gegna líka öðru og mikilvægara hlutverki: Þau minna bílstjórum á að þarna deili þeir akbrautinni með hjólum. Þau gefa til kynna að þessar götur séu sameiginleg rými fyrir hjól og bíla. Og það er æði.















