Sængurverur er sería þar sem ég tek myndir af sængum í búðum. Ég mynda þær þannig að það verður ákveðin persónusköpun í þeim og þær fá líf. Sængur eru mjög persónulegar, við elskum sængina okkar og höfum hana næst okkur. Í þessu umhverfi eru þær hins vegar kaldar og ósnertar. Þær vekja upp ákveðnar hugsanir og tilfinningar.













