non-binary in Icelandic
I have translated this article from @nonbinaryiceland about gender-neutral pronouns. If you are learning Icelandic (like me) and want to learn more it is pretty helpful! I’m working on some other stuff related to this. All mistakes are my own, please correct them.
ég hef útlagði þessi blaðagrein frá @nonbinaryiceland um ókynbundið fornöfn. ef þú ert að læra íslensku (eins og ég) og vill að læra meira, hún er mjög hjálpleg. ég er að vinna á suma aðra hluti eins og þetta. öll mistökin eru mín, leiðrétta þau, takk (ef viltu).
Fornöfn//Pronouns
1. Non-binary fólk notar ýmiss konar fornöfn.//Non-binary people use many different pronouns.
2. Sum okkar erum mjög sátt við að nota annað hvort ‘hann’ eða ‘hún’; sum okkar viljum að það sé reglulega skipt á milli ‘hann’ eða ‘hún’ fornafna; enn önnur viljum við nota ókynbundin fornöfn.//Some of use are very comfortable with using one of either ‘hann (he)’ or ‘hún (she)’; some of us want to regularly switch between ‘hann’ or ‘hún’; still others want to use gender-neutral/genderless pronouns.
3. Það er nánast ómögulegt að ætla sér að giska á fornöfn non-binary fólks, og því er besta lausnin alltaf að spyrja hvert og eitt okkar!//It is very nearly impossible to try and guess the pronouns of non-binary people, and it is always best to ask us which ones.
Ókynbundin fornöfn//Genderless Pronouns 1. Þessi fornöfn eru nýtilkomin í íslenskt tungumál, en þau hafa þróast meðal non-binary fólks sem finnst óþægilegt þegar kynbundin fornöfn (þ.e. ‘hann’ eða ‘hún’) eru notuð fyrir þau, en vilja þar á móti ekki láta kalla sig ‘það*’, þar sem það er ópersónulegt og er almennt frekar notað um hluti en fólk, nema þá í niðrandi samhengi.//These pronouns are emerging in the Icelandic language, and they are emerging among non-binary people who feel uncomfortable when gendered pronouns (such as ‘hann’ or ‘hún’) are used for them, but they don’t want to call themselves ‘það (it)’, because it is impersonal and is usually used for things rather than people.
2. Þar sem non-binary fólk kemur úr ólíkustu áttum hefur ekki verið almenn samstaða með hvaða fornöfn séu best, rétt eins og á öðrum tungumálum.//Because non-binary people come from different experiences, they don’t have to always be in agreement as to which pronouns is best, just like in other languages.
3. Upp hafa sprottið ýmsar útgáfur, en þær sem eru best þekktar eru ‘hán’ (hán/hán/háni/háns), ‘hín’ (hín/hín/híni/híns), ‘hé’ (hé/hé/hé/hés) og ‘þau’ (þau/þau/þeim/þeirra).//Several versions have sprung up, but those which are best known are hán/háni/háns, hín/híni/híns, hé/hé/hés, and þau/þeim/þeirra.
Á öðrum tungumálum//In other languages 1. Á ensku, rétt eins og á íslensku, eru ýmis mismunandi fornöfn í gangi.//In English, just like Icelandic, there are many different pronouns in use.
2. Vegna útbreiðslu tungumálsins væri erfitt að komast saman á um aðeins eitt fornafn til þess að nota, en sum þeirra hafa þó verið til lengur en önnur.//Because of difficulties in the spread of language, it would be difficult to decide on only one pronoun to use, but some have been around longer than others.
3. Það elsta og best þekkta (og auk þess það eina sem er þegar til í orðabókum) er einfaldlega ‘they’.//The oldest and most well-known (and in addition, it is also the one that has already gone in the dictionary) is singular ‘they’.
4. Oftast er þetta fornafn notað sem þriðja persóna fleirtölu, en það er þó algerlega rétt að nota í eintölu ef kyn manneskjunnar sem vísað er til er óþekkt - sbr.//Often this pronouns is used in the third-person plural, but it is still completley correct to use in the singular if the gender of the person who is the subject is unknown.
‘I need to go to a doctor; I hope they’ll be able to help me’.
5. Önnur fornöfn eru, m.a., ‘zie’ (zie/hir/hir/hirs), ‘spivak’ (ey/em/eir/eirs), ‘xe’ (xe/xem/xyr/xyrs).//Other pronouns are, amongst other things, zie/hir/hirs, ‘spivak’ ey/em/eirs, xe/xem/xyrs.
6. Auðveldlega er hægt að finna lista yfir fleiri tilnefningar á netinu með því að leita að “gender neutral pronoun” eða “non-binary pronoun”.//It is easily possible to find a list of more nominations on the internet by searching for “Gender-Neutral Pronouns” or “Non-binary pronouns”.//Sweden formally approved the pronoun ‘hen’ in the year 2014 and it is now in official word-lists.
7. Svíþjóð samþykkti formlega fornafnið ‘hen’ (hen/hen/henom/hens) sem ókynbundið fornafn árið 2014 og er það í opinberum orðalistum núna.
8. Sumir non-binary svíar nota líka fornafnið ‘den’ (den/den/den/dens) sem myndi þýðast sem ‘það (kvk. eða kk.)’.//Some non-binary swedes also use the pronouns den/den/dens which translates more to ‘it’ (masculine or feminine).
9. Noregur hefur að einhverju leyti notað fornafnið ‘hin’ en uppástungur hafa komið upp um að taka upp ‘hen’ frá sænskunni.//Norway has in some parts used the pronoun ‘hin’ but the proposal has come up to take up the use of Swedish ‘hen’.
10. Finnska er ekki með neinn mun milli þriðju persónu fornafna, þ.e. sama fornafnið - ‘hän’ - er notað yfir bæði kk. og kvk.//Finnish does not use any third-person pronouns, there is the same pronoun -hän- used for both masculine and feminine.
En hvaða fornafn á ég að nota ef ég get ekki spurt?//But what pronouns do i use if i don’t get to ask? 1. Ef þú ert að tala um einstakling sem þú veist að er non-binary, en ert ekki viss um hvaða fornöfn manneskjan vill helst að séu notuð er það oftast í lagi að nota eitthvert ókynbundnu fornafnanna þar til þú getur spurt að því persónulega.//If you are talking about someone who you know is non-binary but aren’t sure which pronouns the person wants most to be used, it is usually ok to use any gender less pronoun until you get to ask them
2. Flest fólk sem notar ókynbundin fornöfn, þó þau eigi sér venjulega eitt uppáhalds, kippir sér ekki mikið upp við það þó annað ókyndbundið fornafn sé notað (undantekningin hér væri ‘það’, sem mörgum líkar illa við*). //Most people who use gender neutral pronouns, though they don’t usually have just one favorite, don’t take much after it and will still use a different gender-neutral pronoun (the exception here would be það, which many people take issue with).
3. Ef þú ert að tala um einstakling en veist ekki hvernig sá skilgreinir sig flækist málið aðeins, og fer mikið eftir persónulegum aðstæðum.//If you are talking about a person but don’t know how they refer to themself/what language they define themself with, it depends a lot on personal circumstances.
4. Það er því ekki hægt að segja að neitt eitt svar sé rétt hér, og langbest er að spyrja manneskjuna.//It is not possible to say that just one answer is right here, and the very best is to ask the person.
5. Þangað til væri samt t.d. hægt að víxla milli mismunandi persónufornafna svo þú festist ekki í að nota eitthvað eitt ákveðið.//Until then it would, for example, be possible to switch between many personal pronouns so you don’t determine to use something for certain.
*
1. Sumir non-binary einstaklingar vilja hins vegar nota ‘það’, og finnst það ekki niðurlægjandi.//Some non-binary people want they way used to be ‘það’ and don’t find it dehumanizing.
2. Ákveðin endurheimting hefur einnig verið á þessu fornafni, rétt eins og endurheimting orðsins ‘hinsegin’ sem var upphaflega eingöngu notað í niðrandi merkingu.//There has also certainly been a reclamatiuon of this pronoiun, much like the reclaimation of the word ‘hinsegin (Queer).













