Hafsteinn Vilhelmsson starfsmaður í frístundamiðstöðinni Miðbergi fékk sérstaka viðurkenningu fyrir mikilvægt framlag í starfi kvikmyndaklúbba fyrir 3. til 4. bekk í frístundaheimilum, hæfileikakeppnina Breiðholt got talent og tækni og tækjadeild Miðbergs. Hafsteinn hefur verið frumkvöðull í að kynna kvikmyndagerð fyrir börnum á frístundaheimilum þar sem börnin læra að búa til stuttmynd, fara frá hugmynd til framkvæmdar og uppskera verkefnisins er í formi kvikmynda-hátíðar.
http://borgarblod.is/?p=1526




















